svíþjóð
19. ágúst 2008 klukkan 17:32
Jæja pípul.. ég er búin að skrifa 3 email sem voru semí copy/paste... og ætla mér nú bara að gera það eitt skipti í viðbót til ykkar...
Annars þá vaknaði ég kl. 5 í morgun (GEÐVEIKT mygluð og þreytt). Mamma, Pabbi, Alexandra Líf og Rebekka Lind skutluðu mér uppá flugvöll þar sem við hittum Söndru.
Ferðin gekk mjög vel en ég lenti um korter í 1 á svíatíma og tók síðan lest með Söndru. Við vorum nú ekta túristar og rákumst á hluti og festum næstum kerru í rúllubretti. Sandra ætlaði að deyja úr skömm en við hlógum mjög mikið að klaufaskap okkar. Erla og Elsa hittu okkur síðan á lestarstöðinni en svo kom Annie að sækja mig og fór með mig heim til sín. Ég bý núna í litlu sætu húsi þar sem ég hef mitt eigið herbergi á efra herberginu. Þau eru öll (Annie + 2 krakkar) frekar opin, sérstaklega Rosemarie sem er 12 ára og hættir ekki að tala við mig og spyrja mig spurninga. Það tók Egil Ísar (5 ára) aðeins lengri tíma að segja e-ð við mig en hann hættir núna ekki að tala eftir að ég sagði honum að hann yrði nú eiginlega að hjálpa mér að læra sænsku þar sem ég væri ekki jafn góð og hann í þessu tungumáli =)
Annars þá mætti ég bara hingað og fór upp í herbergi með töskurnar. Síðan fórum við Rosemarie í hjólatúr en hún tók mig í smá ferð um hverfið og sýndi mér smá skóg og hvar skóli þeirra er. Ég hef ekki hjólað síðan ég flaug af hjóli í 9. bekk svo ég var eins og 5 ára krakki að venjast hjóli uppá nýtt... hahaha... svo fórum við aðeins á trampólín og að lokum í IKEA. Við erum núna ný komin heim og krakkarnir eru að borða smá hrísgrjónagraut á meðan Annie þurfti að hlaupa á foreldrafund þar sem litli Egill var að byrja í skóla í dag =)
Ég er nú bara að koma mér fyrir og aðeins að venjast þeirri tilhugsun að ég er nú í Svíþjóð og get ekki farið til Íslands þegar mér hentar.
Meira frá mér seinna en markmiðið er að vera með skype svo þeir sem eiga svoleiðis sniðugt eða ætla að fá sér geta þá spjallað við mig. Ég heiti þar tanjarosin.
Endilega hafið samband við mig í emailum eða á facebook & eða myspace. Einnig kemst ég á msn svo þetta samskiptamál ætti nú að vera sem minnsta mál hérna.
*Knús*
Tanja Rós

Nýtt upphaf =)
18. ágúst 2008 klukkan 10:06
Sælt veri fólkið. Á morgun kl. 07:50 um morguninn fer flugvélin mín frá Keflavíkurflugvelli til Svíþjóðar. Vegna þess að það er svo erfitt að knúsa ykkur öll þegar ég er í Svíþjóð ætla ég að reyna halda utan um þetta blogg. Þá ættuð þið að geta fylgst aðeins með ævintýrinu mínu út í Sverige :)
Annars þá fór ég í tvö brúðkaup um helgina. Bæði voru ótrúlega falleg og yndisleg. Sunna og Hjalti er loksins gift eftir langa bið og bróðir Jóhannesar og einn gamli kennari minn eru gift. Ótrúlega gaman að fá að sjá tvær manneskjur giftast - mikil gleiði og ástarhelgi :)
Í dag þarf allaveganna að gera óóótrúlega mikið finnst mér. Ég þarf að klára pakka en fötin mín fóru öll ofan í tösku fyrir helgi svo ég er búin að vera lifa á fötunum hennar Sahara Rós og útskriftarkjólnum mínum sem ég notaði í báðum brúðkaupunum um helgina. Það er búið að vera ótrúlega skrítið að vera í kringum fólk og þurfa síðan að kveðja það vitandi það að maður eigi ekki eftir að sjá þau aftur í rúma 4 mánuði.
Svo á morgun er stóri dagurinn. Ég er geeeðveikt stressuð og pinkulítið spennt. Það besta er samt að Sandra fer með mér á morgun svo ég hitti hana uppá flugvelli og við ferðumst saman til Uppsala. Annars hef ég ótrúlega lítið að segja í augnablikinu. Sit uppí sófa að horfa á friends og blogga. Endilega kíkið við hér og ég lofa að skrifa hérna update á sænska lífinu mín.
*knús*